Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Barna- og ungmennabókahöfundar verða áberandi í erlendri kynningu

Fréttir

Nýtt kynningarrit um íslenska barna- og ungmennabókahöfunda í vændum, þátttaka í barnabókamessunni í Bologna og aukinn stuðningur við þýðingar barna- og ungmennabóka á erlend mál. 

Árið 2026 leggur Miðstöð íslenskra bókmennta áherslu á barna- og ungmennabækur í erlendu kynningarstarfi

Á árinu 2026 leggur Miðstöð íslenskra bókmennta áherslu á íslenskar barna- og ungmennabækur í erlendu kynningarstarfi. Markmiðið er að vekja athygli á höfundum sem skrifa fyrir börn og ungmenni, kynna höfundaverk þeirra fyrir erlendum útgefendum og auka útbreiðslu verkanna erlendis. 

Nýtt kynningarrit um barna- og ungmennabókahöfunda kemur út í mars nk. og verður lagt til grundvallar í erlendri kynningu, meðal annars á barnabókamessunni í Bologna í apríl, en einnig í Gautaborg í september og Frankfurt í október. 

Af þessu tilefni mun Miðstöðin jafnframt auka stuðning til þýðinga og kynningar á íslenskum barna- og ungmennabókum erlendis:

  • 70% af þýðingakostnaði bóka (að hámarki 500.000 kr), að því gefnu að umsóknin uppfylli þær kröfur sem miðstöðin gerir. Sjá nánar hér.
  • Hluta af prentkostnaði á myndríkum barnabókum til útgáfu erlendis, að því gefnu að umsóknin uppfylli kröfur sem miðstöðin gerir. Sjá nánar hér
  • Ferðastyrki til barna- og ungmennabókahöfunda til að kynna verk sín erlendis. 

Fleiri fréttir

19. febrúar 2026

Nýr vefur Miðstöðvar íslenskra bókmennta er nú opinn

Frétt

12. febrúar 2026

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent

Frétt

26. janúar 2026

Góður NordLit fundur í Helsinki

Frétt

15. janúar 2026

Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár

Frétt