Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Um okkur

Hlutverk Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að efla bókmenningu á Íslandi ásamt því að kynna íslenskar bókmenntir erlendis og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra.

Mikilvægur þáttur í starfi Miðstöðvar íslenskra bókmennta er úthlutun styrkja til útgáfu innanlands og þýðinga á íslensku og á erlend mál. Jafnframt eru veittir ferðastykir höfunda sem og dvalarstyrkir fyrir þýðendur úr íslensku í samstarfi við Rithöfundasamband Íslands.

Kynningarstarf Miðstöðvar íslenskra bókmennta erlendis felst m.a. í þátttöku í helstu bókasýningum og innanlands styður miðstöðin bókmenntakynningu og bókmenningu með samstarfi við fjölmarga innlenda aðila og með sérstökum átaksverkefnum.

Miðstöð íslenskra bókmennta hóf starfsemi í ársbyrjun 2013 og heyrir undir menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.

heimilisfang

Austurstræti 5, 4. hæð

101 Reykjavík 

afgreiðslutími skrifstofu á virkum dögum

09:00–16:00

kennitala

670907-2600

sími

+354 552 8500

tölvupóstfang

islit@islit.is

Starfsfólk og ráðgjafar

Merki

Starfsreglur stjórnar

Stjórn

Stefnumörkun stjórnar

Persónuvernd