Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Úthlutanir útgáfustyrkja 2017

Miðstöð íslenskra bókmennta hefur nú úthlutað 23.5 millj.kr. til 45 verka. Alls barst 101 umsókn frá 56 umsækjendum og sótt var um tæpar 89 millj.kr.

Styrkupphæð: 1.500.000

Segulbönd Iðunnar í ritstjórn Rósu Þorsteinsdóttur. Útgefandi: Kvæðamannafélagið Iðunn.        

Styrkupphæð: 1.200.000

Íslensk smádýr á landi – Skordýr og önnur liðdýr, sniglar og liðormar eftir Erling Ólafsson. Útgefandi: Bókaútgáfan Opna.            

Síldarævintýrið (vinnuheiti) eftir Pál Baldvin Baldvinsson. Útgefandi: Forlagið.                   

Skipulagssaga Íslands eftir Harald Sigurðsson. Útgefandi: Crymogea ehf.             

Styrkupphæð: 800.000

Leitin að klaustrunum. Íslenskt klaustratal eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Útgefandi: Sögufélag.

Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið, 1858-1874 í ritstjórn Terry Gunnell og Karls Aspelund. Útgefandi: Þjóðminjasafnið.

Styrkupphæð: 600.000

Ásmundur Sveinsson – Í hafróti sálarinnar (vinnutitill) eftir Kristínu G. Guðnadóttur í ritstjórn Ólafar Kristínar Sigurðardóttur. Útgefandi: Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn.          

Ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar, formála ritar Sölvi Björn Sigurðsson. Útgefandi: Salka.

Milli steins og sleggju: Nútímasaga Mið-Austurlanda eftir Magnús Þorkel Bernharðsson. Útgefandi: Forlagið.             

Sjúklega súr saga eftir Sif Sigmarsdóttur og Halldór Baldursson. Útgefandi: Forlagið.

Smekkleysa í 30 ár í ritstjórn Ólafs J. Engilbertssonar. Útgefandi: Smekkleysa SM ehf.    

Styrkupphæð: 500.000

Að gera garð. Saga og þróun íslenskrar garðmenningar frá landnámi til miðrar tuttugustu aldar (vinnuheiti) eftir Einar E. Sæmundssen. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.    

Áhrif Lúthers. Siðaskipti, samfélag og menning í 500 ár eftir Hjalta Hugason, Loft Guttormsson og Margréti Eggertsdóttur. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.              

Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari (vinnuheiti) í ritstjórn Ingunnar Jónsdóttur. Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands.

Heiman og heim eftir Birnu Bjarnadóttur. Útgefandi: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.

Hnignun, hvaða hnignun. Goðsögnin um niðurlægingartímabilið í sögu Íslands eftir Axel Kristinsson. Útgefandi: Sögufélag.         

Hvítabirnir – Komur hvítabjarna til Íslands frá upphafi heimilda í sögulegu og þjóðfræðilegu ljósi eftir Rósu Rut Þórisdóttur. Útgefandi: Bókaútgáfan Hólar ehf.                

Íslenska lopapeysan eftir Ásdísi Ósk Jóelsdóttur. Útgefandi: Háskólaútgáfan.      

Jarðvegur – myndun, vist og nýting eftir Þorstein Guðmundsson í ritstjórn Egils Arnarsonar. Útgefandi: Háskólaútgáfan. 

Kristur. Saga hugmyndar eftir Sverri Jakobsson. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Landsýn / Land Seen eftir Einar Fal Ingólfsson. Útgefandi: Crymogea ehf.                             

Nafnlaus: Ólafur Lárusson eftir Þorgerði Ólafsdóttur og Becky Forsythe. Útgefandi: Nýlistasafnið.

Skaftfell í 20 ár í ritstjórn Tinnu Guðmundsdóttur og Elfu Hlínar Pétursdóttur. Útgefandi: Skaftfell ses.

Smásögur heimsins II Rómanska-Ameríka í ritstjórn Jóns Karls Helgasonar, Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur og Rúnars Helga Vignissonar. Útgefandi: Bjartur.

Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur. Útgefandi: Sögufélag.

Þetta voðastríð (Mamma, ég er á lífi) eftir Jakob Þór Kristjánsson. Útgefandi: Sögur ehf.              

Þórir Baldvinsson arkitekt eftir Ólaf J. Engilbertsson. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.  

Styrkupphæð: 400.000

Einar Jónsson myndhöggvari – Hið guðdómlega sjálf eftir Ólaf Kvaran. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.                

Húsasaga Seyðisfjarðar eftir Þóru Guðmundsdóttur í ritstjórn Elfu Hlínar Pétursdóttur. Útgefandi: Seyðisfjarðarkaupstaður.           

Lífdagar – ljóð og söngvar 1976-2017 eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Útgefandi: Túndra ehf.

Sögur af förumönnum. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar (ritröð) eftir Jón Jónsson. Útgefandi: Háskólaútgáfan.

Walden eftir Henry David Thoreau. Útgefandi: DIMMA.

WATCH – What Alternatives? Thinking- Coping-Hoping eftir Önnu Sigurðardóttur, Björgu Jónu Birgisdóttur og Sigríði Huldu Jónsdóttur. Útgefandi: Höfundar.

Styrkupphæð: 300.000

Af sálgreiningu eftir Steinar Örn Atlason, Martein Sindra Jónsson og Benedikt Hjartarson. Útgefandi: Háskólaútgáfan.  

Geymdur og gleymdur orðaforði eftir Sölva Sveinsson. Útgefandi: Forlagið.

Íslenskar bænir fram um 1600 eftir Svavar Sigmundsson. Útgefandi: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.                   

Katrínar saga eftir Þorbjörgu Helgadóttur. Útgefandi: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.    

Landnám Íslands eftir þrettán höfunda í ritstjórn Haraldar Bernharðssonar. Útgefandi: Miðaldastofa Háskóla Íslands.

Málheimar. Sitthvað um málstefnu og málnotkun eftir Ara Pál Kristinsson. Útgefandi: Háskólaútgáfan.

Orrustuskip á Akureyri eftir Illuga Jökulsson. Útgefandi: Sögur ehf.        

Pipraðir páfuglar. Matargerðarlist Íslendinga á miðöldum eftir Sverri Tómasson. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Reykjavíkurljóð eftir Óskar Árna Óskarsson, Jón Kalman Stefánsson ritar formála. Útgefandi: Benedikt bókaútgafa.         

Um Esterarbók eftir Jón Rúnar Gunnarsson í ritstjórn Margrétar Jónsdóttur og Bjarka Karlssonar. Útgefandi: Háskólaútgáfan.              

Styrkupphæð: 200.000

Híbýli fátæktar: Húsnæði og veraldleg gæði fátæks fólks á 19. og fram á 20. öld eftir Sigurð Gylfa Magnússon, Sólveigu Ólafsdóttur og Finn Jónasson. Útgefandi: Háskólaútgáfan.          

Örlagasaga Eyfirðings eftir Heimi Pálsson. Útgefandi: Háskólaútgáfan.