Kristín Ómarsdóttir heldur hér áfram að segja á sinn næma og einstaka hátt skáldaða sögu langömmu sinnar í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Sagan hófst með bókinni Móðurást: Oddný og fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin en fyrir þennan annan hluta frásagnarinnar, Móðurást: Draumþing, var hún sæmd Íslensku bókmenntaverðlaununum.