Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Eldri konur

Ung kona gefur rapport af þráhyggju sinni fyrir eldri konum og rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsára gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Eldri konur er röntgenmynd af ástandi. Við kynnumst konunni með ólíkum brotum af sögu hennar, uppvexti í flóknum heimilisaðstæðum, mismunandi vinnustöðum, vináttu, ástum, sigrum og ósigrum.Ég hef alltaf verið rótlaus og vannærð. Þegar ég kynntist áfengi fannst mér eins og ég væri gróðursett í sólríkan lund. Tilveran fékk á sig fagurgulan blæ eins og horft væri gegnum litað gler. Allt varð bærilegra. Fljótlega fór ég þó út í harðara efni.Efnið mitt gerir mig heila, fyllir mig krafti, lífi, fær mig til að engjast um af fráhvörfum og þráhyggju, lemja, slá, fær mig umsvifalaust til að steypa mér í glötun.

höfundur
útgefandi Benedikt
útgáfu ár 2024
blaðsíðufjöldi 148

Fleiri bækur

Friðsemd

Vatnið brennur

Eldri konur

Sporðdrekar

Himintungl yfir heimsins ystu brún

Móðurást:Draumþing