Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Himintungl yfir heimsins ystu brún

136

Árið 1615 skrifar presturinn Pétur um atburði sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi, um ástina, mennskuna og ábyrgðina sem við berum hvert á öðru. Á ystu rönd heimsins blása alþjóðlegir vindar og flytja með sér nýja heimsmynd, hugmyndir og bækur, enskar duggur, spánska hvalfangara og tilskipanir frá konunginum. Og penninn er beittari en sverðið.Hvort er mikilvægara, að segja sannleikann eða vernda þá sem maður elskar? Árið er 1615, og veröldin er gengin úr lagi, því jörðin er ekki lengur miðdepill alheimsins. Presturinn Pétur á Meyjarhóli skrifar bréf – eða skýrslu, jafnvel ákæruskjal – til að henda reiður á atburðum sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi og kippt stoðum undan tilveru hans og ástvina hans. Því stundum lítur Guð undan og leyfir mönnunum að breytast í djöfla, og hvað verður um þá sem þrjóskast við að segja sannleikann um það sem gerðist? Einkum ef þeir eru svo alræmdir fyrir syndugt líferni, óhlýðni og ósvífni gagnvart höfðingjum þessa lands, að þá hefur dagað uppi á hinum afskekkta Brúnasandi.

höfundur 136
útgefandi Benedikt
útgáfu ár 2024
blaðsíðufjöldi 358

Fleiri bækur

Friðsemd

Vatnið brennur

Eldri konur

Sporðdrekar

Himintungl yfir heimsins ystu brún

Móðurást:Draumþing