Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Karólína Rós Ólafsdóttir og Natan Jónsson hljóta Nýræktarstyrki í ár

Fréttir

Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta voru veittir í átjánda sinn þann 5. júní. Styrkirnir eru 500.000 kr. og eru veittir til nýrra höfunda fyrir óbirt handrit. 

Handhafar nýræktarstyrkjanna með Hrefnu Haraldsdóttur framkvæmdastjóra Miðstöðvar íslenskra bókmennta 

Valið úr innsendum handritum

Árlega veitir Miðstöð íslenskra bókmennta Nýræktarstyrki fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira. Nýræktarstyrkir hafa verið veittir frá árinu 2008; tveir til fimm styrkir í hvert sinn og valið er úr innsendum handritum. Í ár bárust 55 umsóknir Nýræktarstyrki sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Að vali styrkhafa standa bókmenntaráðgjafar Miðstöðvar íslenskra bókmennta, með samþykki stjórnar. Í ár eru ráðgjafar þau Helga Birgisdóttir og Jóhannes Ólafsson.

Þetta er í átjánda sinn sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað, en alls hafa um áttatíu höfundar hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi fyrir afar fjölbreytt verk. Styrkhafar síðasta árs, þau Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Sölvi Halldórsson, hafa hlotið verðskuldaða athygli fyrir verk sín en sem dæmi má nefna var Birgitta Björg tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bóksalaverðlaunanna og hlaut Fjöruverðlaunin í flokki skáldverka fyrir verk sitt Moldin heit.

Meðal þeirra sem áður hafa hlotið Nýræktarstyrk eru höfundarnir Pedro Gunnlaugur Garcia, Arndís Þórarinsdóttir, Fríða Ísberg, Sverrir Norland, Benný Sif Ísleifsdóttir, Maó Alheimsdóttir, Hildur Knútsdóttir, Dagur Hjartarson, Júlía Margrét Einarsdóttir, Bergur Ebbi, Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Jakub Stachowiak svo aðeins nokkur séu nefnd.

Hægt er að nálgast upplýsingar um styrkúthlutanir og styrkhafa fyrri ára hér

Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2025 hljóta eftirtalin verk og höfundar:

Lífskán

Umsögn bókmenntaráðgjafa um verkiðLífskán eftir Karólínu Rós Ólafsdóttur er heillandi ljóðsaga um líkamann, veikindi og manninn andspænis heilbrigðiskerfinu. Textinn er lágstemmdur en agaður og myndmálið sem notað er til að lýsa líkamlegri skynjun, hugarórum og mannlegum samskiptum er sterkt. Lífskán er ljóðrænt ferðalag um mátt tungumálsins til að takast á við mótlæti, halda reisn og skilja undur hins mannlega.

Um höfundinnKarólína Rós Ólafsdóttir (f. 1997) er skáld frá Akureyri. Hún lauk BA prófi í ritlist og bókmenntafræði frá Goldsmiths University of London 2021 og MA prófi í ritlist frá Háskóla Íslands í janúar 2025. Hún hefur birt ljóð í Pastel ritröð, Tímariti Máls og menningar og Skírni sem og í útgáfum í bæði Bretlandi og Þýskalandi. Hún hefur verið virk í upplestrarsenunni í Reykjavík sem og í Glasgow þar sem hún hefur unnið með SPAM zine&press, bæði með tilraunakennd bókverk og upplestra. Hún hlaut viðurkenningu fyrir ljóð sitt ‘Í FYRSTA SINN SEM ÞÚ BÝRÐ Á ÍSLANDI’ í Ljóðstaf Jóns úr Vör 2023 og er einn stofnandi og meðlimur ljóðakollektívsins MÚKK sem er starfandi í Reykjavík.

Sjáðu þú brennur

Umsögnbókmenntaráðgjafa um verkiðÍ Sjáðu þú brennur tekst Natani Jónssyni að bregða upp grípandi myndum af íslenskum raunveruleika í tólf smásögum. Í meitluðum, kröftugum prósanum sem höfundur hefur gott vald á gætir íróníu og glettni með óvæntum hliðstæðum eða mótsögnum tilverunnar. Styrk sagnanna er að finna í lifandi samtölum en jafnframt í dulúð hins ósagða.

Um höfundinnNatan Jónsson (f. 1985) er fæddur á Höfn í Hornafirði en hefur verið búsettur í Hafnarfirði, Frakklandi og Þýskalandi. Hann útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2012 og hefur komið að ýmsum verkefnum tengdum kvikmyndagerð, þá helst leikstjórn og handritsskrifum. Einnig hefur hann skrifað tvö leikrit; verkið Samfarir Hamfarir sem var sett upp í Tjarnarbíó árið 2016 og Igíl Redug sem var sett upp af Stúdentaleikhúsinu árið 2019. Sama ár setti hann upp uppistandsýningu á Reykjavík Fringe hátíðinni. 

Ljósmyndir: Sunday & White Studio, Laimonas Dom Baranauskas
Blóm: Palestínu.blom

Fleiri fréttir

19. febrúar 2026

Nýr vefur Miðstöðvar íslenskra bókmennta er nú opinn

Frétt

12. febrúar 2026

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent

Frétt

26. janúar 2026

Góður NordLit fundur í Helsinki

Frétt

15. janúar 2026

Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár

Frétt