Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Orðstír 2025 afhentur á Bessastöðum

Fréttir

Þýðendurnir Kim Lembek og Tatjana Latinovic hljóta heiðursviðurkenningu þýðenda íslenskra bókmennta á annað mál, en þau hafa þýtt fjölda íslenskra verka á sín móðurmál; Kim á dönsku og Tatjana á serbnesku og króatísku.

Heiðursviðurkenningin er veitt einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi.

Maki forseta Íslands, Björn Skúlason, afhenti heiðursviðurkenninguna Orðstír í fimmta sinn á Bessastöðum 26. apríl sl.

 Myndin er tekin á Bessastöðum: Orðstírshafarnir og Björn Skúlason eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, sem afhenti viðurkenninguna.

Kim Lembek hefur í meira en 40 ár starfað í íslenskum bókmenntum. Hann hefur þýtt um það bil 85 verk úr ýmsum greinum bókmenntanna, bæði nútímabókmenntir og fornbókmenntir. Lembek hefur þýtt öll helstu verk Hallgríms Helgasonar, Sjóns og Jóns Kalmans Stefánssonar yfir á dönsku og að auki hefur hann þýtt höfunda á borð við Fríðu Ísberg, Bergsvein Birgisson og Arnald Indriðason. Einnig hefur hann nýlega þýtt Njálssögu og Grettissögu upp á nýtt.

Tatjana Latinovic hefur búið og starfað á Íslandi síðan árið 1994. Hún þýðir bæði á serbnesku og króatísku og á meðal höfunda sem hún hefur þýtt á serbnesku eru Sjón, Arnaldur Indriðason, Auður Ava Ólafsdóttir, Gyrðir Elíasson, Oddný Eir Ævarsdóttir, Halldóra Thoroddsen, Ófeigur Sigurðsson og Jón Kalman Stefánsson. Á króatísku mætti nefna höfunda eins og Sigurbjörgu Þrastardóttur, Sjón, Einar Má Guðmundsson og Auði Övu Ólafsdóttur.

Að ORÐSTÍR standa Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka, Íslandsstofa, embætti forseta Íslands og Bókmenntahátíð í Reykjavík. Í stjórn að þessu sinni sátu fyrir hönd þessara aðila þau Gauti Kristmannsson, Guðrún C. Emilsdóttir, Kristjana Rós Guðjohnsen, Sif Gunnarsdóttir og Örnólfur Thorsson.

    Fleiri fréttir

    19. febrúar 2026

    Nýr vefur Miðstöðvar íslenskra bókmennta er nú opinn

    Frétt

    12. febrúar 2026

    Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent

    Frétt

    26. janúar 2026

    Góður NordLit fundur í Helsinki

    Frétt

    15. janúar 2026

    Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár

    Frétt