Næsti umsóknarfrestur er 16. mars 2026

Upplýsingar um allar íslenskar bækur á frönsku og sænsku aðgengilegar

Fréttir

Upplýsingar um allar íslenskar bækur á frönsku og sænsku aðgengilegar

https://isl.hypotheses.org/traductions-recentes… og https://www.lasislandskabocker.se/

19. ágúst, 2025

Dr. Hanna Steinunn Þorleifsdóttir, fyrrum yfirmaður norrænu deildarinnar við háskólann í Caen í Frakklandi heldur úti athyglisverðum vef með upplýsingum um allar þýðingar sem komið hafa út á frönsku og  John Swedenmark þýðandi hefur haft veg og vanda af sambærilegum  sænskum vef samvinnu við íslenska sendiráðið í Stokkhólmi og fleiri.

  • Image from islit.is

það er alkunna að íslenskar bókmenntir njóta velgengni víða erlendis og eiga stóran lesendahóp. Í Frakklandi íslenskir rithöfundar tíðir og vinsælir gestir á bókmenntaviðburðum og nýútkomnar íslenskar bækur iðulega sýnilegar þar víða um land.

Dr. Hanna Steinunn Þorleifsdóttir, fyrrum yfirmaður norrænu deildarinnar við háskólann í Caen í Frakklandi heldur úti athyglisverðri vefsíðu með upplýsingum um allar þýðingar sem komið hafa út á frönsku: https://isl.hypotheses.org/traductions-recentes…

Svo vitnað sé beint í Hönnu Steinunni um vefinn: „Leitast er við að setja þýðingar fornbókmenntanna fram á dagljósan hátt fyrir sem flesta. Þegar kemur að nútímabókmenntum er áhersla lögð á að tiltaka titil og útgáfuár á Íslandi samhliða því sama varðandi þýðingarnar á frönsku. Þannig birtist þýðingasagan. Þýðenda er alltaf getið þegar þess er kostur og er skrá þessi í raun þeim til heiðurs. Því skrá er ekki bara skrá, hún er tengiliður, uppspretta hugmynda, fróðleikur, vinátta bókmenningarheima í verki. Það hefur sýnt sig að hún hefur nýst ansi mörgum í gegnum tíðina, s.s. þýðendum, forleggjurum, fræðimönnum, stúdentum, blaðamönnum og öðrum áhugasömum. Til þess var leikurinn gerður.“

Í Svíþjóð hefur þýðandinn John Swdenmark gert sambærilegan vef um íslenskar bækur á sænsku og ýmislegt annað er lýtur að íslenskum bókmenntum: https://www.lasislandskabocker.se/

Fleiri fréttir

19. febrúar 2026

Nýr vefur Miðstöðvar íslenskra bókmennta er nú opinn

Frétt

12. febrúar 2026

Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn 2025 afhent

Frétt

26. janúar 2026

Góður NordLit fundur í Helsinki

Frétt

15. janúar 2026

Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár

Frétt